Quantcast
Channel: Ísafjarðarbær - Allar fréttir
Viewing all 292 articles
Browse latest View live

Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020

$
0
0

Stækkun á miðsvæði, Ísafirði

 

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti 16. febrúar 2017 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 samkvæmt 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í því að mörk miðsvæðis M4 og hafnarsvæðis K1 um Sindragötu færast til austurs. Miðsvæðið stækkar um tæpan 0,5 ha og hafnarsvæðið minnkar sem því nemur. svokölluðu miðsvæði á Ísafirði. Skipulagsuppdráttur gildandi aðalskipulags breytist en greinargerð helst óbreytt. Rökstuðningur fyrir aðalskipulagsbreytingunni er á breytingartillögunni.

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar.

 

Axel Rodriguez Överby

skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar


176

$
0
0

 

 

Dagskrá:

1.  

Verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar - 2014030027

 

Lagður fram verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar.

 

   

2.  

Rekstur á lyftingaaðstöðu í Vallarhúsi - 2013060084

 

Lagt fram bréf frá Vestra, dagsett 22. mars 2017, þar sem óskað er eftir því að fá forræði yfir efri hæð vallarhússins til notkunar fyrir félagsaðstöðu.

 

Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur starfsmanni að gera drög að samkomulagi við Vestra um afnot af húsinu.

 

   

3.  

Stefnumótun Æskulýðsráðs í æskulýðsmálum - 2017030044

 

Lagt fram bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, dagsett 28. febrúar 2017, þar sem kynnt er framkvæmd stefnumótunar Æskulýðsráðs í æskulýðsmálum.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.  

Frístundarúta - 2016090101

 

Lagður fram tölvupóstur frá framkvæmdarstjóra HSV,dagsettur 20. mars 2017, þar sem óskað er eftir því að frístundarúta gangi á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur sumarið 2017.

 

Nefndin tekur vel í málið og leggur til við bæjarráð að samþykkja beiðnina.

 

   

5.  

Fjölnota hjólabraut - 2017030083

 

Lagðir fram tölvupóstar frá Alexander Kárasyni þar sem hann kynnir fjölnota hjólabrautir.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

6.  

Fjárhagsáætlun 2018 - 2017020049

 

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra og gjaldskrá 2017.

 

Nefndin leggur til að stakir miðar í sund verði hækkaðir í kr. 850. Áfram verði frítt fyrir börn í sund. Stakur miði í líkamsræktina verði kr. 850 og kort í líkamsrækt verði einnig hækkuð. Aðrir þættir í gjaldskrá hækki í samræmi við verðlagshækkanir.

 

   

7.  

Framtíðarskipulag skíðasvæðis Ísafjarðarbæjar - 2017030089

 

Hlynur Kristinnsson forstöðumaður skíðasvæðisins kynnir hugmyndir að breytingum á svæðinu.

 

Nefndin tekur vel í hugmyndir forstöðumanns og leggur til við bæjarstjórn að skipuð verði nefnd til að skoða framtíð svæðisins og fá utanðakomandi sérfræðing til að koma að þeirri vinnu.

 

 

Gestir

 

Hlynur Kristinnsson - 09:10

 

Gísli Halldór Halldórsson - 09:15

 

   

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00

 

 

Kristján Andri Guðjónsson

 

Jón Ottó Gunnarsson

Sif Huld Albertsdóttir

 

Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir

Gísli Halldór Halldórsson

 

Ásgerður Þorleifsdóttir

Margrét Halldórsdóttir

 

 

Sundlaugin á Flateyri lokuð

$
0
0

Vegna standsetningar á útipottum og uppsetningu á nýjum potti innanhúss þarf að loka sundlauginni á Flateyri í allt að viku.

 

Nánari upplýsingar seinna.

378

$
0
0

Dagskrá:

1.  

Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

 

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.

 

Lagt fram til kynningar

 

   

2.  

Kennslumínútnafjöldi í list- og verkgreinum í grunnskólum - 2017030019

 

Lagður fram tölvupóstur Margrétar Harðardóttur, f.h. mennta- og menningarmálaráðuneytis, dagsettur 7. mars sl., um fréttatilkynningu mennta- og menningarmálaráðuneytis með niðurstöðum úrvinnslu á upplýsingum frá Hagstofu Íslands um kennslustundafjölda í list- og verkgreinum í grunnskólum fyrir skólaárin 2013-2014, 2014-2015 og 2015-2016. Í tilkynningunni er lögð áhersla á að sveitarstjórnir sjái til þess að allir nemendur fái þann lágmarkskennslumínútnafjölda á skólaári sem þeim ber.

Bæjarráð lagði erindið fram til kynningar á 967. fundi sínum, 13. mars sl., og vísaði til fræðslunefndar.

 

Fræðslunefnd þakkar fyrir þær upplýsingarnar sem komu fram á fundinum og telur að þær séu fullnægjandi.

 

   

3.  

BETT2017 - 2017030073

 

Lögð fram til kynningar skýrsla sviðsstjóra skóla-og tómstundasviðs og skólastjórnenda í grunnskólum Ísafjarðarbæjar, vegna ferðar á Bett ráðstefnuna sem haldin var í lok janúar í London.

 

Fræðslunefnd þakkar fína kynningu.

 

   

4.  

Fjárhagsáætlun 2018 - 2017020049

 

Lagt fram minnisblað Gísla H.Halldórssonar bæjarstjóra, um gjaldskrá 2018.

 

Nefndin gerir ekki athugasemdir við uppbyggingu gjaldskrá að svo komnu máli, en vísar minnispunktum áfram til vinnu við endurskoðun skólastefnu.

 

   

5.  

Læsisstefna ísafjarðarbæjar - 2016080050

 

Lagt fram lokaskjal að lestrastefnu Ísafjarðarbæjar. Vinna við hana hófst haustið 2014 og unnið hefur verið í samvinnu við kennara, stjórnendur leik- og grunnskóla Ísafjarðarbæjar,.

 

Fræðslunefnd þakkar fyrir fína lestrarstefnu.

 

   

6.  

Endurskoðun á skólastefnu Ísafjarðarbæjar - 2016100048

 

Lögð fram drög að skipulagi á endurskoðun skólastefnu Ísafjarðarbæjar.

 

Drög að vinnu samþykkt og að vinnu verði haldið áfram.

 

   

7.  

Skólanámskrár leikskólanna - 2014120059

 

Lögð fram endurskoðuð skólanámskrá frá Heilsuleikskólanum Laufási á Þingeyri. Á grunni aðalnámskrár og námskrá leikskóla Ísafjarðarbæjar mótar hver leikskóli sína skólanámskrá. Skólanámskrá fjallar um þau gildi sem starf leikskólans byggist á og þá hugmyndafræði sem tekið er mið af. Námskráin var samþykkt af foreldrarráði leikskólans 9. febrúar 2017.

 

Lagt fram til kynningar og fræðslunefnd þakkar fyrir.

 

   

 

 

Bragi Rúnar Axelsson yfirgaf fund kl. 8:45

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:15

 

 

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir

 

Bragi Rúnar Axelsson

Martha Kristín Pálmadóttir

 

Gunnhildur Björk Elíasdóttir

Margrét Halldórsdóttir

 

Guðrún Birgisdóttir

Opnun tilboða í Urðarvegsbrekku verkefnið

$
0
0

Í dag, 3. apríl 2017 klukkan 11:00 voru opnuð tilboð í Urðavegsbrekku verkefnið.

 

Tvö tilboð bárust og eru eftirfarandi eftir yfirferð,

 

Gröfuþjónusta Bjarna ehf. 52.428.000,- 107% af kostnaðaráætlun og

Tígur ehf. 54.281.690,- 111% af kostnaðaráætlun,

 

kostnaðaráætlun 49.027.800,- 100%.

Kynning á skipulagstillögum vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og deiliskipulagi Mjólkárvirkjunar.

$
0
0

Ísafjarðarbær kynnir breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og deiliskipulagi  Mjólkárvirkjunar. Skipulagstillagan er kynnt á vinnslustigi í samræmi við 4.mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Tillögurnar verða til sýnis á opnunartíma frá kl.10:00 til 15:00 á bæjarskrifstofum Ísafjarðabæjar að Hafnarstræti 1, Ísafirði og á skrifstofu Verkís, að Hafnarstræti, 1 Ísafirði. Tillögurnar verða jafnframt aðgengilegar á heimasíðu Ísafjarðarbæjar: www. isafjordur.is

 

Opið hús verður mánudaginn 10. apríl 2017 milli 13:00 og 14:00 á Tæknideild Ísafjarðarbæjar, 4. hæð.

 

Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og berast Skipulags- og byggingarfulltrúa á skrifstofu Ísafjarðarbæjar að Hafnarstræti 1, Ísafirði, eða á netfangið axelov@isafjordur.is fyrir 11. apríl 2017.

 

Vakin er athygli á því að um er að ræða kynningu á vinnslustigi og tillögur verða auglýstar síðar og þá verður gefinn sex vikna frestur til athugasemda.

 

 

 

 

Virðingarfyllst,

 

 

_______________________________

Axel Rodriguez Överby

- skipulags- og byggingarfulltrúi -

 

 

 

Sjá meðfylgjandi gögn:
http://www.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/1065
http://www.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/1066

http://www.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/1067

http://www.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/1068

http://www.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/1069

http://www.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/1070

http://www.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/1071

 

Blái bankinn - Kynningarfundur

$
0
0

Þann 16. mars síðastliðinn gerðu Ísafjarðarbær, Nýsköpunarmiðstöð og Landsbankinn, auk fleiri einkaaðila, með sér samkomulag um að koma upp samvinnurými í útibúi Landsbankans á Þingeyri sem kallast Blábankinn. Þetta rými mun verða vettvangur til að veita og þróa þjónustu fyrir íbúa svæðisins, ásamt því að gefa íbúum og gestum tækifæri til að hittast, læra, uppgötva, skapa og vinna saman.

 

Stofnaðilar bjóða til kynningar á þessu spennandi verkefni.

 

Kynningin fer fram í Félagsheimilinu á Þingeyri þriðjudaginn 11. apríl kl. 17:30 og verður að kynningu lokinni rölt yfir í Blábankann. Dagskráin verður svohljóðandi:

Inngangur                                   

      Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri

Frá hugmynd til framkvæmdar

      Alain De Cat, fjárfestir

6 stoðir Blábankans                

      Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari

      Sigríður Kristjánsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands

      Sævar Ríkharðsson, útibússtjóri Landsbankans

Hlutverk fyrirtækjanna                                  

      Wouter Van Hoeymissen                        

Næstu skref                                                        

      Þórdís Sif Sigurðardóttir

Spurningar og hugmyndavinna

Sundlaugin á Flateyri opnar aftur

$
0
0

Á morgun, miðvikudag, opnar sundlaugin á Flateyri aftur eftir endurbætur.

 

Opið verður frá 13:00.


Breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag vegna Naustahvilftar í Skutulsfirði

$
0
0

 

 Ísafjörður, 7. apríl 2017

2016100047

Efni: Auglýsing

-Breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag vegna Naustahvilftar í Skutulsfirði

 

Ísafjarðarbær kynnir skipulagslýsingu vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og á nýju deiliskipulagi vegna Naustahvilftar, Skutulsfirði.

 

Skipulagstillagan er kynnt á vinnslustigi í samræmi við 4. mrg. 40 gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Lýsingin verður til sýnis á opnunartíma frá kl. 10:00 til 15:00 á bæjarskrifstofum Ísafjarðarbæjar að Hafnarstræti 1, Ísafirði og mun vera aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins: www.isafjordur.is frá 12. apríl til 2. maí 2017.

 

Vakin er athygli á því að um er að ræða kynningu á vinnslustigi og tillögur verða auglýstar síðar og þá verður gefinn sex vikna frestur til athugasemda.

 

Virðingarfyllst,

_______________________________

Axel Rodriguez Överby

- skipulags- og byggingarfulltrúi -

 

 

 

Sjá nánar: A1224-003-U02-Skipulagslýsing-ASK-DSK-Naustahvilft

Fylgiskjöl fundargerða aðgengileg á heimasíðu.

$
0
0

Fyrir skömmu hóf Ísafjarðarbær að birta fylgiskjöl fundargerða á heimasíðu bæjarins. Ávallt hefur verið hægt að óska eftir að fá fylgiskjöl nefndafunda afhent eftir að fundi lýkur, en birting fylgiskjala á heimasíðunni gerir fólki kleift að lesa á auðveldan hátt það sem liggur að baki ákvörðunum kjörinna fulltrúa og eflir þar með opinbera stjórnsýslu og þjónustu við bæjarbúa.

 

Við birtingu fylgiskjala er farið eftir upplýsingalögum nr. 140/2012 sem nálgast má á heimasíðu Alþingis.

Sundlaug Ísafjarðar lokuð 1. maí

$
0
0

Lokað verður í Sundlaug Ísafjarðar þann 1. maí.

Listamannaspjall - Álfabækur

$
0
0

Þriðjudaginn 2. maí verður Garason  (Guðlaugur Arason) í Safnahúsinu milli kl. 4 og 6 og segir frá verkum sínum á sýningunni Álfabækur. Verkin sýna bækur í ýmsu rými en verkin krefjast þess að áhorfandinn gefi sér góðan tíma til að skoða þau því í hverju þeirra leynist lítill verndarálfur. 

 

Rithöfundurinn Guðlaugur Arason gaf út sína fyrstu skáldsögu (Vindur, vindur vinur minn) 25 ára gamall. Síðan hefur hefur hann skrifað skáldsögur, leikrit, ljóð og tvær bækur um Kaupmannahöfn. Verk hans hafa notið mikilla vinsælda og verið verðlaunuð. Hann er því þekktari sem rithöfundur en myndlistarmaður þótt hann hafi alla tíð unnið að mydlist jöfnum höndum með skriftum. Meðal helstu bókmenntaverka hans má nefna Víkursamfélagið, Sóla, Sóla, Eldhúsmellur, Pelastikk og Gamla góða Kaupmannahöfn. 

Höfnin á Suðureyri fær bláfánann afhentan á næstunni

$
0
0

Nú á næstunni mun smábátahöfnin á Suðureyri fá afhentan bláfánann.

 

Viðurkenningin er veitt fyrir markvissa umhverfisstjórnun, góða þjónustu, vandaða upplýsingagjöf og fræðslu um umhverfið. Meginmarkmið verkefnisins að vernda umhverfi í og við smábátahafnir og baðstrendur og efla umhverfisvitund bæði notenda og samfélagsins í heild.

 

Bláfáninn er tákn um gæði í margvíslegum skilningi og hver sá sem fær að flagga honum getur verið stoltur af vinnu sinni að umhverfismálum. Það er sæmandi fiskveiðiþjóð og ferðamannalandi að gera kröfur um framúrskarandi umhverfisstjórnun í höfnum landsins og er Bláfáninn öflugt tæki til að stuðla að því.

 

(Texti og mynd fengin að láni frá www.landvernd.is)

Boðsbréf í heilsufarsmælingu

$
0
0

ERT ÞÚ VIÐ GÓÐA HEILSU?


Hjartaheill og SÍBS bjóða ókeypis heilsufarsmælingu 9. til 12. maí á
heilsugæslum á Vestfjörðum, sjá tímatöflu.

 

Mældur er blóðþrýstingur, blóðsykur, blóðfita, súrefnismettun og styrkur.

 

Þátttakendum býðst að taka þátt í lýðheilsukönnun. Verkefnið er unnið í samstarfi við sveitarfélög á Vestfjörðum, Heilbrigðisstofnanir Vesturlands og Vestfjarða.

 

 

Þá viljum við vekja athygli á fræðsluerindi um "Stóru myndina í heilbrigðismálum"  sem Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SÍBS verður með í Fræðslumiðstöð Vestfjarða Ísafirði, fjarfundur á Patreksfirði, fimmtudaginn 11. maí kl. 12-13, jafnframt verður reynt að streyma fundinum á Facebook síðu SÍBS. Erindið er um 20 mínútur en í kjölfarið verður opið fyrir spurningar og umræður.

 

Erindið er sérstaklega áhugvert fyrir fagaðila og fulltrúa sveitarfélaga sem vinna að stefnumótun og framkvæmd verkefna er tengjast heilsueflingu.

Aðalfundur Hverfisráðs Súgandafjarðar

$
0
0

Hér með er boðað til aðalfundar Hverfisráðs Súgandafjarðar sem haldinn verður

fimmtudaginn 25. maí kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Suðureyri.

 

Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:

  1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins og nefnda á liðnu starfsári.
  2. Umræður um reikninga félagsins.
  3. Breytingar á samþykktum félagsins.
  4. Kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára.
  5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  6. Fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
  7. Verkefni næsta árs.
  8. Önnur mál.
    1. Fjárfestingar ársins 2017

 

 

Allir íbúar með lögheimili í Súgandafirði og eru 18 ára og eldri hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundum félagsins og eru hvattir til að mæta.                  

 

11. maí 2017

Stjórn Hverfisráðs Súgandafjarðar og Ísafjarðarbær


Lóðir til úthlutunar

$
0
0

Ísafjarðarbær auglýsir lausar lóðir til úthlutunar á Suðureyrarmölum, Suðureyri.

Um er að ræða 10 lóðir undir íbúðarhúsnæði, 16 lóðir undir íbúðir og blandaða starfsemi og 2 lóðir á svæði ætlað undir hafnsækna starfsemi.

 

 

Skilmála gildandi deiliskipulags Suðureyrarmala má sjá inni á: www.map.is/skipulag

 

Nánari upplýsingar hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar: axelov@isafjordur.is

Íbúafundur í Hnífsdal

$
0
0

Haldinn verður íbúafundur í Hnífsdal þar sem bæjarstjóra, bæjarritara, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, bæjarfulltrúum og íbúum gefst kostur á að hittast og ræða þau mál sem á þeim brenna, svo sem umhverfismál, framkvæmdir og framkvæmdafé hverfisráðsins.

 

Fundurinn verður haldinn í Barnaskólanum í Hnífsdal mánudaginn 22. maí n.k. kl. 17:00.

Íbúafundur á Þingeyri - Frestað

$
0
0

Haldinn verður íbúafundur á Þingeyri þar sem bæjarstjóra, bæjarritara, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, bæjarfulltrúum og íbúum gefst kostur á að hittast og ræða þau mál sem á þeim brenna, svo sem umhverfismál, framkvæmdir, samfélagsmiðstöðina Blábankann, hverfisráð og framkvæmdafé hverfisráðsins.

 

Fundurinn verður haldinn í Stefánsbúð, 2. hæð á Þingeyri mánudaginn 22. maí n.k. kl. 20:30.

Íbúafundur á Suðureyri

$
0
0

Haldinn verður íbúafundur á Suðureyri þar sem bæjarstjóra, bæjarritara, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, bæjarfulltrúum og íbúum gefst kostur á að hittast og ræða þau mál sem á þeim brenna, svo sem umhverfismál, framkvæmdir, skipulagsmál, hverfisráð og framkvæmdafé hverfisráðsins.

 

Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu Suðureyri mánudaginn 22. maí n.k. kl. 20:00.

Ljóti andarunginn - Leikhópurinn Lotta

$
0
0

Leikhópurinn Lotta sýnir Ljóta andarungann, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum á 

​Ísafirði 10. júní klukkan 17

 

. Þetta er ellefta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Litaland, Litlu gulu hænuna, Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Hópurinn frumsýnir Ljóta andarungann í Elliðaárdalnum í Reykjavík miðvikudaginn 24. maí, en í framhaldinu mun hópurinn ferðast með sýninguna og heimsækja yfir 50 staði víðsvegar um landið.

Höfundur Ljóta andarungans er Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er sjöunda leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006. Ný tónlist hefur einnig verið samin fyrir verkið. Textarnir eru eftir Önnu Bergljótu, utan eins sem er eftir Baldur Ragnarsson en lögin sömdu Helga Ragnarsdóttir og Rósa Ásgeirsdóttir.

Ljóti andarunginn er ný útgáfa Leikhópsins Lottu af klassísku ævintýri H. C. Andersen um litla ungann sem hvergi virðist eiga heima. Lotta notar hér tækifærið til að takast á við erfitt samfélagsvandamál, nefnilega einelti. TIl að bæta við skemmtanagildið og um leið styðja boðskapinn blandar Lotta saman fimm sögum en auk Ljóta andarungans kynnumst við Öskubusku, Kiðlingunum sjö, Héranum og skjaldbökunni og Prinsessunni á bauninni. Ævintýriin eru síðan öll límd saman með nýjum íslenskum lögum svo úr verður sannkölluð fjölskylduskemmtun.

Miðaverð á sýninguna er 2.300 krónur og ekki þarf að panta miða fyrirfram heldur er alveg nóg að mæta bara á staðinn. Gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu. Öllum þykir jú gaman að eiga mynd af sér með uppáhalds vini sínum úr Ævintýraskóginum.

Nánari upplýsingar um sýninguna má finna á www.leikhopurinnlotta.is og í síma 770-0403.

Viewing all 292 articles
Browse latest View live