Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti 2. nóvember 2017 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Mjólkárvirkjunar og veitusvæðis hennar skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin felst í að skipulagssvæði Mjólkárvirkjunar stækkar til austurs inn á Glámuhálendið um u.þ.b. 10 km2. Meðal annars er gert ráð fyrir fjórum nýjum veituskurðum, tveimur nýjum stíflum auk yfirfalla og lokuhúsa. Einnig verður byggt yfir spenna og tengivirki í Borgarfirði.
Tillagan liggur frammi á skrifstofum Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, frá 9. nóvember 2017 til 21. desember 2017 og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, nánar tiltekið á slóðinni http://www.isafjordur.is/umhverfid/deiliskipulag/Mjolkarvirkjun_-_Deiliskipulagstillaga/
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 22. desember 2017, annaðhvort skriflega á Ísafjarðarbæ, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði eða á netfangið: axelov@isafjordur.is .